.... mér til mín er komin í hús. Ég var ekkert að vesenast með að geyma gjöfina eitthvað heldur spændi upp pakkann í mikilli tilhlökkun og váááá..... I´m in Love
Ég er búin að sjá svo marga flotta púða á hinum ýmsu síðum og er Dossa sérstaklega dugleg að sýna okkur margt fallegt. Maður fær alveg kaupsting við að sjá allt þetta fallega dót.
En svo var ég að vafra inná www.aliexpress.com um daginn í fyrsta skiptið því maður var að heyra annan hvern mann tala um þessa síðu og þá rakst ég á þessa dásemd.
Ég var sko ekki lengi að næla mér í þá. Mér finnst þeir svoooo fallegir.
Svo er bara spurning á ég að hafa þá hér í stofunni?
Eða í sjónvarpsholinu?
Hvað finnst ykkur? Hvar njóta þeir sín betur?
Svo var ég víst ein af fáum sem náði að næla sér í svona flottan bakka í RL.
Hann er bara æði og svo er skál í stíl, fínt fyrir smákökurnar með sjónvarpsglápinu á kvöldin.
En hvað segiði; í stofunni eða sjónvarpsholinu? Hvaða púði er uppáhalds?
Persónulega er ég alltaf rosalega veik fyrir uglum en ég get heldur ekki staðist flott hreindýr.
Munið að skilja eftir ykkur spor, það er svo gaman að sjá hverjir eru að skoða.
Jólaknús
Birna


