Sýnir færslur með efnisorðinu Jóla. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Jóla. Sýna allar færslur

fimmtudagur, 6. mars 2014

Kannski kominn tími....

..... á að halda áfram með þetta blessaða blogg. Seinasta færsla var gerð 19. desember... ég bara hálf skammast mín. En nú skal úr því bætt en fyrst að ég skildi seinast við í jólamánuðinum þá er best að loka þeim kafla og sýna ykkur jóla vinkonugjafirnar í ár. En ég byrjaði á því í fyrra að færa nokkrum góðum vinkonum smá jóla vinkonugjöf. Til að minna ykkur á þá voru gjafirnar árið 2012 svona:


Hægt að sjá heildarfærsluna hér. En þetta var nú mjög einfalt og ódýrt en það er alltaf gaman að gleðja aðra.

Í ár notaði ég líka bara það sem ég átti til, gamalt efni, borða og fyllingu innan úr púðum sem ég var hætt að nota, úr því urðu þessi sætu vinkonuhjörtu.




Með þessu fylgdi síðan súkkulaðiskeið til að búa til heitan súkkulaðidrykk, sykurpúðar og piparmyntubrjóstsykur. Súkkulaðiskeiðinni var einfaldlega hrært út í bolla af heitri mjólk og þá var komið heitt súkkulaði. Ekkert betra á köldu vetrarkvöldi en heitt súkkulaði.


Þannig var það nú. Svo var líka leynivinaleikur í þorpinu og eru það þá fjölskyldur sem taka þátt og koma hvort öðru á óvart með gjöfum. Langaði bara að sýna ykkur hvað við vorum með.


Byrjuðum á að færa þeim nýbakað bananabrauð, kerti og jólakakó fyrir fjölskylduna.


Næst var þessi krúttlegi jólasveinasleði sem færði þeim spil og nammi :)


Að lokum var sveitahryggur fyrir fjölskylduna sem vonandi kom sér vel.

Knús
Birna


Best Blogger Tips

miðvikudagur, 11. desember 2013

Veikindi á veikindi ofan...

.... þannig er nú bara staðan á mínu góða heimili. Elsti búinn og tók það fljótt af, miðjan nýbúin en litla greyið mitt ætlar ekki að ná sér. Það er komið á aðra viku núna sem hann er með þessa blessuðu magapest.


En broskallinn hættir samt ekkert að brosa. 

Mamman er hinsvegar að verða buguð af þreytu og vöðvabólgu, gott svona korter í jól. Ég sem ætlaði að gera svo margt en það koma jú jól fyrir því. Ég vona bara svo innilega að hann fari að hressast litli kallinn minn. Það er ekkert verra en að horfa uppá þau þegar þeim líður illa.

Við náðum nú samt sem áður að mála piparkökurnar og piparkökuhúsin seinustu helgi.


Elsti minn búinn að missa sínar fyrstu tennur, seinni var að detta úr í fyrradag :)


Þeir verða ekki mikið krúttlegri en þessi :)


Hér er afraksturinn okkar, allir strákarnir fengu að skreyta sitt piparkökuhús


Svo flott jólabörn

Annars er minn tími aðallega búinn að fara í veikindastúss en ég náði þó að pakka inn gjöfunum í gær og skrifa á nokkur jólakort. Síðan klippti ég líka út þessi sætu snjókorn í gluggana hjá okkur. 
Sá þetta hjá henni Stínu Sæm og þetta kemur svo vel út.


Eigið góðan dag

Knús
Birna
Best Blogger Tips

miðvikudagur, 27. nóvember 2013

Ég elska jólin...

.... og allt sem þeim fylgir. Það er eitthvað svo notalegt og kósý við jólaljósin, og bara það að fá smá auka rauðan lit inná heimilið gerir það svo hátíðlegt. Ég er allavega byrjuð að skreyta og hlakka svo til jólanna enda algjört jólabarn. Lagtertan, jólasmákökurnar og aðventuljósið bíða spennt eftir sunnudeginum.


Forstofan mín er að komast í jólagírinn

Eruð þið byrjuð að skreyta og baka?

Jólaknús
Birna

Best Blogger Tips

laugardagur, 24. desember 2011

Gleðilega Jólahátíð

Nú er aðfangadagur genginn í garð og ég ætla að nota tækifærið og óska öllum gleðilegra jóla og vona að allir eigi yndislegan tíma framundan í faðmi fjölskyldunnar. Það er að verða jólalegt hjá okkur í Króknum og hér ríkir mikil eftirvænting.

Lífið er yndislegt !!






Best Blogger Tips

mánudagur, 12. desember 2011

Stofan mín...

.... er alltaf að breytast. Fyrst ætlaði ég ekki að mála strax þar sem það átti að fara í breytingar fyrir jól. I know, ég er MJÖG bjartsýn :D en þegar við sáum fram á að það myndi frestast fram í janúar þá ákvað húsfreyjan að mála, ekki hefur maður þetta svona á sjálfum jólunum. En svona leit stofan út þegar við fórum að skoða það upprunalega. Húsið var nýtt sem gistiheimili áður en við keyptum.


Svo varð það tómt ;)


Þá fluttum við inn og ég fór beint í að sparsla veggina, óþolinmóða ég :D



Síðan var málað.... þvílíkur munur



Þá komst ég í hamarinn og naglann og hengi upp myndir, svo að endurraða... og á örugglega eftir að endurraða OFT ;) ef ég þekki mig rétt. Enda er helmingurinn af "skrautinu" mínu ennþá ofan í kössum.


Sjónvarpssófinn er á leiðinni til að okkar og þá færist sjónvarpið inní sjónvarpsholið og þessir bláu stólar sem ég fékk by the way ókeypis af barnalandi fá vonandi bráðum nýtt áklæði ;)






Uppáhalds jólasveinarnir mínir sem ég fékk í skóinn þegar ég var lítil :) Held svo mikið uppá þessa


2 postulínshlutir sem ég málaði fyrir einhver jólin




Best Blogger Tips

fimmtudagur, 1. desember 2011

Húsið að komast í jólabúninginn

við fengum þær fréttir fyrir nokkrum dögum að gluggarnir verða ekki tilbúnir fyrr en í janúar og því verðum við að sætta okkur við að hafa húsið svona yfir jólin. Ég ætla því bara að ráðast í það að mála stofuna, ekki fer ég að hafa þetta svona yfir sjálf jólin.


frekar sad að hafa veggina svona með sparslblettum og allt svona eins og maður hafi flutt inn í gær. þannig að nú er bara að henda sér í að mála. Ég kláraði efri hæðina loksins í fyrradag. Nú eru gulu veggirnir á burt, thank god !! ég var að verða vitlaust á þessari svakalegu litagleði hérna.... gult og grænt, svo "lovely"



En núna er þetta allt annað, þá er hægt að fara að skreyta veggina með fallegum fjöldskyldumyndum eða hvað sem maður ákveður. Ég er líka með hugmynd í sambandi við hurðina inná salernið, endilega fylgist með því. Vona að það komi vel út.



Þvílíkur munur. Hvað þá þegar stofan verður til en ég var samt byrjuð aðeins að skreyta stofugluggana. En þeir eiga eftir að breytast, believe you me ;) en svona líta þeir út núna.


Þarna hangir fína stóra jólakúlan sem ég fékk á 499 kr ;) alltaf að græða !!


Laukurinn blómstrar :)



Gamla góða aðventuljósið á sínum stað, var að hugsa hvort ég pimpi það aðeins upp.... það kemur í ljós :) Best Blogger Tips

sunnudagur, 27. nóvember 2011

Kransinn....

...ég fer að verða nokkuð sátt með hann núna held ég. Svona leit hann út í morgun, set þarna mynd sem ég tók af bollakökunum sem ég bakaði fyrir Jólagleðina á Veitingahúsinu Vegamótum á Bíldudal sem foreldrar mínir reka, en ég hef staðið fyrir þessari Jólagleði á aðventunni í nokkur ár og það er alltaf jafn hátíðlegt og skemmtilegt. En það er nú önnur saga eins og þessir kökudiskar, það kemur í næsta pósti ;)


Þegar ég kom heim eftir jólagleðina þá fór ég aðeins að kíkja betur á kransinn og bætti smá gullblingi og hreindýri sem ég keypti í RL minnir mig. Hefði komið betur út í gylltu eða að hafa kertin hvít en ég var svosum ekkert með kransinn í huga þegar ég keypti hreindýrið og man hreinlega ekki eftir því hvort það voru aðrir litir, þó mig minni það. Mér fannst það bara eitthvað svo flott og ég er líka eitthvað voðalega rauð núna þessi jólin :)




Frekar kósí að sitja við stofuborðið núna :)

Ákvað líka að vera ekkert að bíða með þessar seríur mikið lengur, þeir fara varla í það að skipta um gluggana fyrir jól. En þá bara tek ég þær niður ;)


Gleðilega aðventu öllsömul Best Blogger Tips