Sýnir færslur með efnisorðinu Eldhús. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Eldhús. Sýna allar færslur

þriðjudagur, 5. nóvember 2013

Nýtt look....

.... á síðunni, það var kominn tími á það. Hvernig lýst ykkur á?

Í októbermánuði hefur verið lítill tími í dundur á þessu heimili þar sem yngsti strákurinn minn er búinn að vera meira og minna veikur allan mánuðinn. Aldrei náð flensunni almennilega úr sér en er nú kominn á sýklalyf sem ég vona að nái að hjálpa honum.

Ég hef þó verið í einhverjum smá verkefnum, svona til að stytta mér stundir inn á milli. Til dæmis breytti ég aftur bakkanum sem ég gerði fyrir nokkru síðan, hann leit svona út:


Þið getið séð nánar um gömlu færsluna hér. Þetta var mjög flott með kortinu, en þó byrjaði að koma svona blettir inn undir kortið og það leit ekki vel út þannig að ég neyddist til að taka kortið af. Síðan bara gleymdist hann inn á skrifstofu sem er búin að vera "under construction" allt árið. Skrifstofan er ekki enn tilbúin, en það fer þó að styttast í það.

Anyhoo, síðan vantaði mig bakka þegar ég var að breyta aðeins uppröðun í eldhúsinu og þá fann ég rúllu sem ég hafði keypt í Tiger sem var plasthúðuð og með lími á bakinu. Þannig að ég ákvað að prófa að skella því á og það kom bara mjög vel út.


Síðan sjáið þið væntanlega líka glitta í nýjan vegglímmiða en áður var ég með þennan sem þið sjáið hér


Ég er alltaf voða veik fyrir babúskum en málið er að mig langar að fara að taka rauða litinn út úr eldhúsinu og skipta yfir í pastel liti. Meiri svona rómó stemmningu þó ég sé mjög hrifin af þessum rauða en hitt kallar meira á mig núna. I know, nýlega búin að mála borðstofustólana rauða en ég meina það má alveg fá sér nýja... er þaggi?

Annars lítur stofan okkar svona út núna, mér finnst hún svo kósí.


Við keyptum okkur nýjan sófa í RL þar sem hinn sem við vorum með var bara allt of stór í þetta rými. Kommóðan sem þið sjáið við hlið sófans er einmitt verkefni sem ég er að vinna í núna. Ég er búin að mála hana en vantar á hana nýjar höldur. Vona að ég geti klárað hana í næstu viku.

Mig langar síðan til þess að biðja ykkur um að skilja eftir ykkur spor sem kíkið á síðuna og skrifa athugasemdir við færslurnar. Það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með.

Svo væri ég ævinlega þakklát ef þið myndum deila síðunni minni áfram.

Með fyrirfram þökk...

Knús

Birna
Best Blogger Tips

fimmtudagur, 6. september 2012

Smá endurröðun....

... og fínerí í eldhúsinu í dag. Langaði svo aðeins að breyta til og líka ennþá að laga þetta allt saman að mínu höfði. Famílían var að koma úr bæjarferð þar sem yngsti fjölskyldumeðlimurinn var að fá rör í eyrun sín. Hann stóð sig að sjálfsögðu eins og hetja. Þau eru svo dugleg þessi krili.

Í þessari ferð þá fór ég í Blómaval, lenti þar á þessari fínu útsölu og keypti mér nokkur blóm. Ég keypti mér Erikur en þær eru alltaf svo ótrúlega fallegar. Síðan er mér lengi búið að langa í Orkideu og fjárfesti í henni á 20 % afslætti en í bónus fékk ég svo Frúarlauf á hvorki meira né minna en 70% afslætti
...ég bara stóðst ekki mátið :)


Alltaf jafn fallegar Erikurnar



Frúarlaufið sem mun síðar blómstra hvítum blómum.


Fallega fallega Orkidean mín fékk stað á eyjunni í eldhúsinu. Þegar ég var að koma þessum elskum í potta þá fór mig að klæja í fingurna að breyta aðeins til í eldhúsinu og það fyrsta var að breyta í hvíta 2ja hæða disknum mínum. Áður hýsti þessi bakki ýmislegt fyrir morgunmatinn eins og sykur, púðursykur, rúsínur og hnetur. En núna er það te og kerti sem iljar manni þegar það er farið að kólna.  


Bætti svo við stórum hvítum kertastjaka sem ég gerði upp fyrir einhverju síðan. Í sevíettustandinn passaði þessi fíni 4ra hólfa glerbakki sem ég fékk í Góða Hirðinum og hann hýsir hnetur til að maula á yfir daginn auk fallegra skraut jarðaberja.



Flotti barinn minn sem ég keypti í Tékk Kristal á sínum tíma fékk líka smá makeover en hann hýsti Herbalife safnið mitt. Var í raun aldrei búin að ákveða hvernig hann ætti að vera. Þannig að morgunverðar hlutirnir fóru hingað yfir og ég á eftir að kaupa mér 2 fínar 2L glerkrúsir til að setja morgunkornið í.



Annars er ég mikið að pæla í því hvort ég eigi kannski að spreyja þennan hvítan? Hvað finnst ykkur?


Best Blogger Tips

miðvikudagur, 22. ágúst 2012

Bloggleysi....

..... er eina sem hægt er að segja um bloggið mitt seinustu vikur. En núna þegar það er farið að hausta og fjölskyldan að komast í rútínuna þá fer húsfreyjan kannski að gera eitthvað meira á heimilinu. 

Við erum nýkomin úr innkaupaferð í Reykjavík og við nýttum tækifærið og keyrðum á suðurslandið þar sem við fórum að sjá Kerið, Gullfoss og Geysi, ég hef sjálf lítið ferðast um landið okkar og var þetta í fyrsta skiptið sem ég sá Kerið. Við komum við í dýragarðinum Slakka sem var alveg æðislegur staður, strákarnir voru mjög hæstánægðir og skemmtilegast þótti að fara í alla bílana sem voru þarna á pallinum. Síðan enduðum við ferðina á að heimsækja langafa þeirra á Selfossi. Æðislegur dagur í alla staði.








Við náðum að versla heilan helling fyrir heimilið í þessari ferð og það sem liggur fyrir núna er að klára að ganga frá gluggunum á efri hæðinni. Það þarf að pússa, sparsla og mála, þá er loksins hægt að setja upp rúllugardínurnar sem við keyptum okkur í RL vöruhúsinu ;) Ég er bara mjög sátt við þær.... 


Við gerðum líka góð kaup í Bauhaus, en við keyptum þar falleg gamaldags útiljós og 2 baðherbergisljós á neðri hæðina. Þannig að þetta fer allt að smella saman hjá okkur.

Ég er með nokkur stór verkefni framundan  t.d. að útbúa barnaherbergin uppá nýtt þar sem það er nýr einstaklingur væntanlegur í heiminn í nóvember og ég mun færa strákana í önnur herbergi og hlakka mikið til að gera þau flott fyrir þá. Síðan er annað verkefni sem er mjög spennandi en við hjónin erum mikið íþróttafólk og eigum mikið safn af verðlaunapeningum, viðurkenningum og bikurum sem vantar að koma fallega fyrir. Það er búið að kaupa allt sem til þarf en ég ætla ekkert að uppljóstra neinu heldur kemur þetta bara í ljós ;)

Áður en ég kveð að sinni ætla ég að sýna ykkur smá ör-verkefni sem ég gerði um daginn. En í einni ferð minni í Góða Hirðinn  fann ég þessa fallegu litlu hillu með 3 krókum sem ég vissi reyndar ekkert hvað ég ætlaði að gera við. Síðan datt mér í hug að nota hana í eldhúsinu því mig vantaði stað til að hengja svuntu, handklæði og viskastykki. Ég byrjaði á að hvítta hilluna og festi hana síðan upp í þá hæð sem mér fannst passa. Síðan bjó ég til kalkmálningu úr ljósbleikum lit (white rose frá Flugger) sem ég notaði í svefnherberginu okkar. Mig langaði nefnilega að vera með einhvers konar töflu uppá vegg þar sem ég skrifa það sem er á matseðlinum þá vikuna og datt þá í hug að setja þessa tvo hluti saman.

Svona kom þetta út:




Þetta er allavega byrjunin,  er samt mikið að pæla í því að gera eitthvað meira eins og t.d. mála einhvers konar ramma utan um kalkflötinn, gera eitthvað töff til að fá þetta til að "poppa" aðeins meira fram því liturinn er svo ljós. Síðan þarf ég nú að fá mér minni krítar hahah..... átti bara einhverjar risa krítar frá strákunum en ég lét það duga í bili.

Hvernig líst ykkur á?

Best Blogger Tips

miðvikudagur, 11. júlí 2012

Eldhúsið fyrir og eftir....

.... þá er komið að því að sýna nýja fína eldhúsið mitt. Uppröðun og slíkt er ennþá work in process, enn á eftir að setja nokkrar innstungur og svoleiðis frágangur. En mikið er þetta orðið fínt og þvííííílík breyting á einu eldhúsi, það verð ég að segja.

Hér koma nokkrar myndir af eldhúsinu eins og það var þegar við keyptum í fyrra.




Svo leit stofan hinum megin við vinstri vegginn svona út, fyrst fyrir málun....




Svo komu jólin og ég bara varð að mála og gera kósí hjá okkur :)



Í janúar var byrjað að rífa....




Opnað yfir í eldhúsið


Þarna var stigi niður í kjallara og var farið inní skáp til að komast niður.



Jæja eruði orðin spennt ?????
.
.
.
.
.













Ég er alveg að ELSKA nýja fína eldhúsið MITT !!!





Endilega skiljið eftir spor og kvittið, gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með :)

knús Birna





Best Blogger Tips