Sýnir færslur með efnisorðinu meistaramánuður2013. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu meistaramánuður2013. Sýna allar færslur

mánudagur, 7. október 2013

Meistaramánuður - vika 1...

.... er liðin og ég hef verið nokkuð dugleg að halda mig við markmiðin. Set þetta hér niður á blað til þess að geta gert enn betur. Batnandi mönnum er best að lifa ekki satt?

Styrking fyrir líkamann
  • Vakna kl 7 á virkum dögum og taka 24fit æfingu áður en ég kem gemlingunum mínum á fætur  - Hef vaknað alla daga kl 7 en ekki náð að gera æfingu nema einu sinni því oftast voru allir vaknaðir með mér. Spurning um að endurskoða þetta markmið og breyta aðeins.
  • Mæta í ræktina þrisvar í viku - ég mætti einu sinni í vikunni, búin að vera veik en stefni að þremur skiptum þessa vikuna.
  • Sofna kl 23 á kvöldin - alla daga nema föstudags og laugardagskvöld
  • Vera dugleg að fara út að labba eða hjóla með Nóa meðan hinir tveir eru í skóla/leikskóla - er búin að vera mjög dugleg að fara út að labba með Nóa. Það má ég eiga :)

Næring fyrir líkamann
  • Sleppa hvítu hveiti og hvítum sykri - Markmiði náð en þó gleymdi ég mér eitt skipti þegar ég setti sykur út á cheerios. Yfirleitt er ég ekki að borða cheerios.
  • Ekkert áfengi nema (kannski) á árshátíð 12. október - markmiði náð enda lítil drykkja öllu jöfnu á okkar heimili.
  • Ekkert sælgæti eða sætabrauð, dökkt súkkulaði leyft og aðrar hollustu uppskriftir - markmiði náð en verð að segja að ég var skuggalega nálægt því á laugardagskvöld þegar ég var í heimsókn og þar var nammi á boðstólunum. ÚFFF.....
  • Einungis drekka vatn (amk 2L á dag), sódavatn og grænt te - markmiði náð

Annað
  • Minnka facebook notkun niður í tvær klst á dag - markmiði náð
  • Leika meira við strákana mína og gera skemmtileg verkefni saman - þarf að vinna betur í verkefnunum en reynt að leika meira við þá
  • Taka aftur upp prjónana - ekki byrjuð en farin að skoða hvað ég ætti að prjóna
  • Búa til viðskiptaáætlun fyrir gæluverkefnið mitt - undirbúningsvinna hafin

Ég hef ákveðið að breyta fyrsta markmiðinu á þennan hátt:

Styrking fyrir líkamann
  • Vakna kl 7 á virkum dögum og gera 50/50/50/50 (hnébeygjur, magaæfingar, bakæfingar, armbeygjur) æfingu áður en ég fer á kreik.

Ég held að þetta markmið henti mér betur eins og er.
Prófum þetta.

Hvernig gengur hjá ykkur?

Knús Birna

Best Blogger Tips

sunnudagur, 22. september 2013

Meistaramánuður 2013 - markmiðasetning

Ég rakst á síðuna hjá Meistaramánuðurinn fyrir nokkrum dögum á facebook og ákvað þá strax að ég vildi taka þátt. En Meistaramánuður felst í því að þátttakendur vakni fyrr, neyti ekki áfengis og hreyfi sig vel ásamt því að borða og njóta lífsins betur en aðra daga. Meistaramánuðurinn er heill mánuður þar sem við setjum okkur markmið og búum til góðar venjur fyrir alla hina mánuði ársins. 

Meistaramánuður stendur yfir í 30 daga og mun ögra þátttakendum líkamlega og andlega í átt að því að verða meistarar eigin lífs.


Nú er komið að mér að setja niður markmið, ég ætla að byrja á að hafa þau fá og bæta frekar við ef mér finnst eitthvað vanta. Þetta er það sem ég er komin með so far:



Styrking fyrir líkamann
  • Vakna kl 7 á virkum dögum og taka 24fit æfingu áður en ég kem gemlingunum mínum á fætur
  • Mæta í ræktina þrisvar í viku
  • Sofna kl 23 á kvöldin
  • Vera dugleg að fara út að labba eða hjóla með Nóa meðan hinir tveir eru í skóla/leikskóla

Næring fyrir líkamann
  • Sleppa hvítu hveiti og hvítum sykri
  • Ekkert áfengi nema (kannski) á árshátíð 12. október
  • Ekkert sælgæti eða sætabrauð, dökkt súkkulaði leyft og aðrar hollustu uppskriftir
  • Einungis drekka vatn (amk 2L á dag), sódavatn og grænt te

Annað
  • Minnka facebook notkun niður í tvær klst á dag. 
  • Leika meira við strákana mína og gera skemmtileg verkefni saman
  • Taka aftur upp prjónana 
  • Búa til viðskiptaáætlun fyrir gæluverkefnið mitt

Fjögur markmið fyrir hvern þátt, er það ekki ágæt byrjun?
Ég er allavega tilbúin.

Knús Birna





Best Blogger Tips

laugardagur, 21. september 2013

Meistaramánuður 2013


Ákvað að taka þátt í meistaramánuðinum. 

Nú er bara að velja sér markmið, þarf að hugsa þetta vel og vandlega.

Ill keep you posted ;)

Knús Birna

Best Blogger Tips