þriðjudagur, 6. nóvember 2012

Nýjir púðar í sjónvarpsdyngjuna...

.... okkar. Ég tók mig til í gær og gerði jólahreingerninguna á kúrusófanum okkar þar sem ég fer að fara til Höfuðborgarinnar að koma barninu í heiminn. Verður gott að koma heim í hreint heimilið í stað þess að byrja að þrífa þá. Er þetta ekki gott plan hjá mér ?

Ég ryksugaði sófann, færði til og tók ALLA púðana... sem eru margir.... og já ég er komin 38 vikur :) ég læt sko ekkert stoppa mig. Sófanum fylgir nefnilega svakalegt magn af púðum og auk þess er ég með 4 stóra púða..... s.s. lexían hér, það er ALDREI of mikið af púðum. Tveir af þessum púðum var ég alltaf á leiðinni að sauma nýtt utanum en það var eitt af þeim verkefnum sem sátu alltaf á hakanum. Ég að sjálfsögðu henti mér í þetta verkefni og VOILA.....



Ég verð að afsaka gæðin á myndunum en myndavélin er eitthvað að stríða mér þessa dagana. Mér finnst myndirnar allar koma svo óskýrar út allt í einu, ég bara skil það ekki. En allavega þá eru þessir skrautlegu púðar núna mjög vinsælir meðal strákanna og þykja mjög flottir.

Knús Birna

Best Blogger Tips

2 ummæli:

  1. Koma vel út og jeremías hvað þú ert öflug! Farðu nú vel með þig :-)

    SvaraEyða
  2. takk fyrir það og já ég passa að hvíla mig inná milli :)

    SvaraEyða