þriðjudagur, 27. mars 2012

Það er eitthvað að gerast...

... í okkar málum loksins. Gluggarnir verða komnir í okkar vörslu í dag og þá hefst vinnan við að mála þá og glerja. Því verki verður lokið eftir páska og þá verður hægt að klára húsið hjá okkur. Verktakarnir komu og héldu áfram með sitt verk í seinustu viku og nú er bara að bíða eftir gluggunum. Þeir náðu að gera heilan helling og hér er útkoman:

Sturtuklefinn kominn á sinn stað

Allt annað að hafa klósettið upphengt og svona beint heldur en á ská út úr horninu

Búið að setja upp vegginn í sjónvarpsholinu

 Það er að koma mynd á arininn

Verður miklu opnara og skemmtilegra

Verið að loka þessu leiðinlega gati sem myndaðist þarna við stigaloftið

Inngangurinn

Búið að slétta alla veggi, loft og gólf.
Hvernig líst ykkur á??
Best Blogger Tips

3 ummæli:

  1. Vá! enginn smá munur! og jiii hvað arininn er kósý!!

    SvaraEyða
  2. Arininn er ÆÐI, og þetta bara allt saman :)

    SvaraEyða
    Svör
    1. já þetta kemur svakalega vel út, get ekki beðið eftir því að raða upp á arinhilluna :) og bara raða í alla skápa.... maður er svo bilaður hehe

      Eyða