mánudagur, 23. júlí 2012

Á elskulega afmælismömmu í dag...

........ og ég fór að því tilefni í heimsókn til hennar ásamt mínum heittelskaða og strákunum mínum. Óliver sá eldri sá um að skreyta afmælispappírinn sem var settur utan um aðra gjöfina sem var ömmukerti og fékk að færa henni. Sá yngri, Frosti, gaf henni gjafapoka með Gullkornum dagsins.

Amman var síðan vakin með knúsi og kossum. Þegar hún var komin á fætur þá beið hennar morgunverðarhlaðborð með nýbökuðu brauði, áleggi, rjúkandi kaffi og fallegum bollakökum.

Því miður gleymdi húsfreyjan myndavélinni heima, ég tók samt tvær á símann en ég afsaka gæðin, þau eru ekki uppá marga fiska.


Fallegi pakkinn sem Óliver færði ömmu sinni


Vanillubollakökur með bleiku piparmyntu smjörkremi


Það er svo gaman að gleðja aðra.

knús Birna

Best Blogger Tips

föstudagur, 13. júlí 2012

Vinkonuhittingur....

.... seint á fimmtudagskvöldi, var svo ljúfur. Ég bauð nokkrum skvísum í vöfflur og heitt súkkulaði í kvöld. Dekkaði borðið fínt upp og gerði kósí fyrir okkur.

Alveg æðislegt kvöld, takk fyrir komuna stelpur.


Kaffistellið er úr Ilvu og fjölnota servíetturnar frá Lin design


Þessa svörtu glerdiska fékk ég í afmælisgjöf í fyrra



Löberarnir úr IKEA að sjálfsögðu :)


Læt svo fylgja með eina mynd af arinhillunni minni, var að prófa smá nýtt :) 
Er alltaf að grafa eitthvað nýtt uppúr kössunum mínum


Þetta fuglabúr féll ég fyrir í Söstrene Grene, elska þessa búð !!!

Knús á ykkur
Birna


Best Blogger Tips

miðvikudagur, 11. júlí 2012

Eldhúsið fyrir og eftir....

.... þá er komið að því að sýna nýja fína eldhúsið mitt. Uppröðun og slíkt er ennþá work in process, enn á eftir að setja nokkrar innstungur og svoleiðis frágangur. En mikið er þetta orðið fínt og þvííííílík breyting á einu eldhúsi, það verð ég að segja.

Hér koma nokkrar myndir af eldhúsinu eins og það var þegar við keyptum í fyrra.




Svo leit stofan hinum megin við vinstri vegginn svona út, fyrst fyrir málun....




Svo komu jólin og ég bara varð að mála og gera kósí hjá okkur :)



Í janúar var byrjað að rífa....




Opnað yfir í eldhúsið


Þarna var stigi niður í kjallara og var farið inní skáp til að komast niður.



Jæja eruði orðin spennt ?????
.
.
.
.
.













Ég er alveg að ELSKA nýja fína eldhúsið MITT !!!





Endilega skiljið eftir spor og kvittið, gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með :)

knús Birna





Best Blogger Tips

laugardagur, 7. júlí 2012

Afmæli í dag...

.... hjá yours truly og svo var líka haldið uppá 5 ára afmæli Ólivers Loga en hann á afmæli 11. júli. Fyrir 2 dögum var eldhúsið galtómt, allt eldhúsdótið í kössum (og við erum að tala um þvílíkt magn af kössum) og heimasætan ekkert búin að baka. En það vill til að ég er þokkalega skipulögð þannig að ég réðst í verkið á fimmtudagseftirmiðdegi. Bakaði kökur á meðan ég raðaði í skápa. Svo fékk ég þennan sæta aðstoðarkokk í morgun sem bjargaði mér alveg.



Síðan þurfti auðvitað að þrífa og svona aðeins flikka uppá stofuna. Ég gaf sjálfri mér fallegan ramma frá henni Dossu í Skreytum hús og hlakkaði svo til að setja hana á arinhilluna mína. Arininn er ekki alveg klár, á eftir að mála hann að innan og arinhillan var ólökkuð.... þannig að ég gerði það bara í snöggheitum og það kom svo svakalega vel út. Uppröðunin er ekkert klár en þetta er svona það sem ég hafði við hendina og skellti þarna upp fyrir veisluna.




Ég er alveg að elska þennan ramma, að sjálfsögðu eru ekki komnar í hann myndir frá mér ;) hehe þannig á meðan fá þessar að njóta sín. Bókina fékk ég í Húsasmiðjunni, glerkúpulinn keypti ég af konu á barnalandi og kertastjakann í Tiger. Spegilinn gerði ég upp, sjá hér og vasana man ég ekki alveg hvar ég fékk.


Þema afmælisveislu Ólivers að þessu sinni var hauskúpur en svo var líka búningaafmæli þar sem afmælisgestir mættu í búningum. Veislan var haldin í bílskúrnum hjá okkur sökum rigningar og það fór bara vel um þau þar. Það var svaka fjör og mikil ánægja hjá afmælisbarninu og afmælisgestum.






Inni í húsi fengu fullorðnir að sitja og veisluborðið var ekki af verri endanum.



Mikil spenna yfir pökkunum.



Svo var auðvitað að prófa allar gjafirnar.




Kominn í sparifötin og farinn í afmælisveislu nr 2 hjá bekkjarsystur sinni Hörpu. Tók smá syrpu af afmælisstráknum mínum. Hann er orðinn svo stór og fullorðinn allt í einu.





Algjör töffari


Meðgangan er hálfnuð en ég var komin 20 vikur í gær og bumban hefur tekið mikinn kipp seinustu viku. 


Dagurinn er bara búinn að vera rosalega góður og ég hlakka til að sýna ykkur betri myndir af eldhúsinu þegar ég er búin að taka til í eldhúsinu eftir veisluna ;) Ég lofa að það verður fljótlega.


Knús Birna afmælisstelpa






Best Blogger Tips