miðvikudagur, 27. júní 2012

Þetta skotgengur...

.... hlið 1 er tilbúin nema í kringum gluggana, það kemur aðeins síðar, og byrjað er á hlið 2. Þetta lítur svo vel út, hlakka svo til að sjá framhliðina tilbúna. Svona lítur fyrsta hliðin út.....




Þvílíkur munur....




Húsmóðirin í vinnugallanum horfir stolt á húsið sitt en við hjúin vorum að enda við að klára málningarvinnu í sjónvarpsherberginu og þá getur parketlagningin hafist. 

Knús

Birna











Best Blogger Tips

sunnudagur, 24. júní 2012

Þetta gengur...

.... hægt og rólega, en gengur þó. Eldhúsveggurinn er flísalagður, spanhelluborðið komið í og háfurinn hengdur upp. Þetta potast, en það er samt stopp í eldhúsinu núna því vaskurinnn er ekki kominn hingað.... það hlýtur að fara að gerast. Þannig að þið verðið að bíða aðeins lengur með að sjá heildarútkomuna þar. Það er byrjað að rífa utan af húsinu hinsvegar og ein hliðin að verða til, járnið verður vonandi sett á í dag. Verður gaman að sjá hvernig það kemur út.


Svo erum við hjúin búin að taka smá skurk í garðinum. Trén voru svo úr sér vaxin og teygðu anga sína um allan garð. Núna er garðurinn orðinn helmingi stærri, gleymdi þó að taka fyrir mynd en hér kemur eftir.


Grasið er orðið svakalega lélegt og það á eftir að vinna mikið verk í garðinum til að fá hann góðan, en þangað til verður smá sláttur að vera nóg.


Nóg af eldiviði fyrir veturinn :)

Vona að þið eigið góðan sunnudag.

knús





Best Blogger Tips

þriðjudagur, 12. júní 2012

Borðstofusettið....

.... er loksins tilbúið, YAY !!! búið að taka tíma en það var alveg þess virði. Ætlaði síðan að taka þátt í pinterest áskorun hjá Dossu í Skreytum hús en ég var því miður ekki tilbúin með verkið áður en áskoruninni lauk. En ég set þetta samt sem áður hér inn hjá mér svo þið getið séð. Hérna kemur fyrirmyndin af pinterest sem ég er búin að dást mikið og lengi að:

love the red dining chairs

Fannst þetta combo eitthvað svo ÉG. Finnst svona hárauðir stólar bara alveg geggjaðir og ég bara varð að prófa. Ég er bara nokkuð sátt við útkomuna.


Svona til að rifja upp þá leit borðstofusettið mitt svona út.


Keypti það notað fyrir sirka 5 árum á 15 þúsund krónur og það hefur reynst mér vel. Á þessum tíma var ég mikið með húsgögn í þessum kirsuberja lit. Núna er ég hinsvegar komin með hvítu delluna á alvarlegu stigi og er að mála allt sem ég á hvítt. Það er svo gaman að breyta.






Ég er svo sátt, hvað finnst ykkur?

Best Blogger Tips

laugardagur, 9. júní 2012

Matjurtaræktunin...

.... er komin vel á veg, nú fer maður að setja í potta og jafnvel setja eitthvað af þessu út.  Þessar myndir eru teknar fyrir ca 2 vikum síðan og er mikið búið að vaxa síðan þá.

 Snjóbaunagrasið er orðið huge !!! hlakka til að sjá hvort hún braggist ekki vel. Síðan er þarna basilíka, mynta, steinselja, timian og ég veit ekki hvað ;)

Ýmsar salattegundir


Tómatar, paprika og gúrka

Vona að uppskeran verði góð.
Eruð þið að rækta?

Best Blogger Tips

sunnudagur, 3. júní 2012

Eldhúsinu stillt upp...

.... en ég tími ekki að sýna ykkur allt en hér er smá innsýn í nýja flotta eldhúsið mitt. Ég sýni ykkur meira þegar allt er tilbúið. Til upprifjunar þá leit gamla eldhúsið svona út:


Svipað sjónarhorn í dag:



Hlakkar ykkur til að sjá heildarútkomuna?

Kv Birna




Best Blogger Tips